Jarðaberja-og hnetusmjörsþeytingur

16 Jun 2017

Þessi þeytingur er ekki bara dásamlega góður á bragðið heldur tekur aðeins fimm mínútur að útbúa hann.

Uppskrift

2 matskeiðar Whole Earth Smooth hnetusmjör
1 matskeið hrein jógúrt eða grísk jógúrt
6 fersk jarðaberð án stilka
Handfylli af ísmolum

Aðferð

Setjið hnetusmjör, hreina jógúrt/gríska jógúrt, jarðaber og ísmola í blandara og blandið þar til áferðin er mjúk.

Hellið í hátt glas og njótið!

 

Heimild: vefsíða Whole Earth food.