Grænn og guðdómlegur hummus

12 Oct 2017

Berið fram í fallegri skál og skreytið e.t.v. með saxaðri steinselju, chilli og ólífuolíu. Geymist í kæli í viku.

 
Innihald:
  • 3 kúfaðar msk tahini
  • 4 msk ferskur sítrónusafi
  • 2 msk ólífuolía
  • 15 gr grófsöxuð fersk steinselja
  • 60 gr grófsaxað ferskt spínat
  • 2-3 msk grófsaxaður graslaukur
  • 1 stór hvítlauksgeiri, saxaður smátt eða rifinn á rifjárni
  • Sjávarsalt eftir smekk
  • 1 dós lífrænar kjúklingabaunir frá Biona, vatninu hent og þær skolaðar með köldu vatni
Aðferð:
  1. Setjið allt í matvinnsluvél og vinnið þangað til hummusinn er silkimjúkur
  2. Gott að stoppa eftir ca. 1 mínútu og skafa niður með hliðunum og blanda svo betur.