Skilmálar

Kæri notandi:

Heilsuhúsið er byggt á traustum grunni og hefur verið leiðandi í framboði á heilsuvörum í 40 ár.Við leggjum okkar metnað í að bjóða fyrsta flokks þjónustu. Öll viðskipti eru trúnaðarmál og við tryggjum viðskiptavinum okkar örugg viðskiptinu á netinu.

1. SKILMÁLAR
Þessir skilmálar gilda um sölu á vörum og þjónustu Lyfju hf. til neytanda.  Skilmálarnir eru staðfestir með staðfestingu á kaupum og greiðslu fyrir viðskiptin. Öll viðskipti eru trúnaðarmál og við tryggjum viðskiptavinum okkar örugg viðskiptinu á netinu.

2. SKILGREININGAR
Seljandi er Heilsuhúsið kt. 531095-2279.  Kaupandi er sá aðili sem skráður er sem kaupandi á reikning.  Kaupandi verður að vera a.m.k. 16 ára.

3. SKILARÉTTUR
Hægt er að skila vörum í næstu verslun Heilsuhússins ef  varan er óskemmd og óopnuð í upprunalegum umbúðum og kvittun fylgir með. Ef um gallaða vöru er að ræða skal hafa samband við vefverslun Heilsuhússins varðandi skil. Merkja skal hvort varan sé gjöf áður en greiðsla fer fram og  tilskildur skilamiði mun vera settur á vöruna sem tryggir örugg skil innan mánaðar frá kaupum vörunar. Ef um jólagjafir er að ræða er  tilskildur skilamiði settur á vöruna. Almennur skilafrestur á vörum eru 30 dagar. Við skil er boðið upp á aðra vöru eða inneignarnótu. Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda.  Ef vara reynist gölluð greiðir Heilsuhúsið hf fyrir endursendingu vörunnar. Vörum sem krefjast ákveðinna geymsluskilyrða er ekki hægt að skipta.

4. VERÐ OG VERÐBREYTINGAR
Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti ýmist 11% eða 24% og birt með fyrirvara um innsláttarvillur og áskilur Heilsuhúsið sér rétt til að ljúka ekki viðskiptum hafi rangt verð verið gefið upp.  Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða skráningar.  Verðbreytingar sem gerðar eru eftir að pöntun er staðfest eru ekki afturkræfar nema í ljós komi að um innsláttarvillu eða ranga skráningu hafi verið að ræða.

Við upplýsum viðskiptavini okkar um ef vara sem hefur verið pöntuð er ekki til á lager tímabundið og bjóðum uppá að hún verði send þegar hún verður aftur fáanleg. Ef vara er ekki til á lager til lengri tíma mun Heilsuhúsið endurgreiða viðskiptavini pöntunina að fullu hafi greiðsla farið fram.

5. PERSÓNUVERND
Seljandi fer með allar upplýsingar sem algört trúnaðarmál og eru þær eingöngu nýttar til að klára viðkomandi viðskipti.  Upplýsingar um greiðslukortanúmer koma ekki til seljanda heldur eru á afmörkuðu vefsvæði viðkomandi greiðsluþjónustu. Til þess að styðja við þjónustu okkar eru upplýsingar um sölu í netverslun vistaðar í 40 daga og þá gerðar ópersónugreinanlegar. 

6. SENDINGARMÖGULEIKAR OG KOSTNAÐUR
Sendingarkostnaður bætist við verð vöru í lok kaupferils og áður en greiðsla fer fram.  Fjöldi afhendingardaga miðast frá því að pöntun fer frá okkur til Íslandspósts og TVG.

  • Íslandspóstur - pakki heim að dyrum, 1-2 virkir dagar - 990 krónur
  • Íslandspóstur - pakki á pósthús, 1-2 virkir dagar - 790 krónur
  • Íslandspóstur - Póstbox, 1-2 virkir dagar - 590 krónur
  • TVG kvölddreifing (sent heim samdægurs eða næsta virka dag (gildir aðeins á  virkum) - 990 krónur
  • TVG afhent á sendingarstað (N1, World Class, Kringlan, Olís, Bónus ofl.) 1-2 virkir dagar  - 590 krónur
  • Íslandspóstur heimspakkar - verðskrá er að finna í kaupferlinu eftir löndum.

Frír sendingarkostnaður ef pantað er fyrir 8.900 krónur eða meira.  

7.  AFHENDINGATÍMI
Afhendingartími er að jafnaði 1-4 virkir dagar eftir að pöntun er að fullu frágengin og er send með Íslandspósti. Heimsendingum á höfuðborgarsvæðinu er dreift samdægurs, eða degi eftir að pöntun hefur verið afgreidd úr netverslun. Allar pantanir eru sendar af stað eins fljótt og kostur er. Ef vara er uppseld er viðskiptavinur látin vita að seinkun gæti orðið á pöntun.

8. ÖRYGGI
Það er 100% öruggt að versla hjá Heilsuhúsið netverslun  Greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslusíðu Valitors.

9. GREIÐSLUMÖGULEIKAR
Í netverslun Heilsuhússins er boðið uppá nokkrar greiðsluleiðir. í boði er að greiða með öllum helstu greiðslukortum, maestro debetkortum, millifærslu, PEI og Netgíró.  Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla hefur borist og pöntun verður send.

10. MILLIFÆRSLUR
Ef valið er að greiða með millifærslu er óskað eftir því að staðfestingu á greiðslu verði send á netfangið: netverslun@heilsuhusid.is   

11. BANKAREIKINGUR:

0537-26-10800
kt: 531095-2279

Ef pöntun er ekki greidd innan tveggja daga telst pöntun ógild.

12. GREIÐSLUKORT
Mögulegt er að greiða með pöntun með öllum helstu kreditkortum og fer greiðsla í gegnum örugga greiðslugátt hjá Valitor.

13. NETGÍRÓ
Netgíró er kortalaus viðskipti á netinu. Til þess að geta nýtt sér þennan greiðslumöguleika er skilyrði að viðskiptavinur sé með aðgang hjá Netgíró sem hægt er að sækja um hér:  www.netgiro.is Viðskiptavinur þarf þá einungis að slá inn kennitölu og lykilorð í lok kaupferlisins. Greiðsluseðill birtist í heimabanka viðskiptavina sem gefst kostur á að greiða reikninginn innan 14 daga, vaxtalaust. 

14. PEI
Pei er kortalaus greiðsluleið þar sem þú borgar með að fá greiðsluseðil sendan í heimabanka með 14 daga til að borga. Hægt er að fá auka 30 eða 60 vaxtalausa daga til að borga, einnig er hægt að dreifa kaupunum. Ekki er nauðsynlegt að vera forskráður hjá Pei ef verslað er fyrir undir 20.000 kr. Ef þú skráir þig inn á www.pei.is sérð þú þína heildarheimild hjá Pei.

15. LÖG UM VARNARÞING
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur

16. FYRIRTÆKJAUPPLÝSINGAR

Heilsuhúsið
Hagasmára 1-3ja hæð
201 Kópavogur
Sími: 533 2316
Netfang: netverslun@heilsuhusid.is
VSK no: 49215

17. STAÐSETNING NETVERSLUNAR

Heilsuhúsið
Kringlunni
103 Reykjavík
Sími: 568 9266
Netfang: netverslun@heilsuhusid.is