Salicylsýra (BHA sýra) er fituleysanleg sýra sem hjálpar til við að halda fitukirtlum húðarinnar hreinum. Dauðar húðfrumur og húðfita safnast fyrir í kirtlunum og getur valdið stíflum. Salicylsýran fjarlægir þessar húðfrumur og húðfitu og heldur kirtlunum hreinum og opnum. Hún er einnig bólgueyðandi. Gott er að nota hreinsi sem inniheldur salicylsýru einu sinni til tvisvar sinnum á dag.