Græn smoothie skál

12 Oct 2017

Einföld og fljótleg uppskrift að girnilegri smoothie skál.

 
Einn skammtur
 
Innihald:
  • 1 vel þroskað mangó í bitum
  • 100 gr ananas í bitum
  • 1 vel þroskaður banani
  • 2 handfyllir af spínati
  • 50 ml jurtamjólk
  • 1 tsk Matcha grænt te (má sleppa)
  • 1 msk chia fræ
Ofaná t.d.:
  • Múslí
  • Kókosmjöl
  • Fersk ber
  • Hampfræ
  • Hnetusmjör
Aðferð:
  1. Setjið allt í blandara
  2. Blandið þar til silkimjúkt
  3. Hægt er að nota frosna ávexti ef þú vilt þykkari blöndu
  4. Ef þú vilt þynnri blöndu, má bæta meiri jurtamjólk útí
  5. Hellið blöndunni í skál og toppið með því sem hugurinn girnist