Spagettíréttur með tómötum, basil og hvítlauk

27 Oct 2017

Einfalt, girnilegt og bragðgott!

Hráefni:

  • 200 gr emmer spagetti (Rapunzel) 
  • 1 flaska maukaðir tómatar 410 gr (Rapunzel) 
  • 2 tsk tómatpúrra (22%) (Rapunzel) 
  • 3 stk hvítlauksgeirar 
  • 1 stk grænmetiskraftur (Rapunzel) 
  • 250 gr kirsuberjatómatar 
  • 1 stk grænn kúrbítur 
  • 100 gr grænkál 
  • 1 msk ósaltað smjör 
  • 3 msk fersk basilíka 
  • Salt

Leiðbeiningar

  1. Hitið vatn í potti og fáið suðuna upp, bætið ólífuolíu og ½ tsk salti útí. Bætið spagettí útí og látið sjóða í 8 mínútur, sigtið. 
  2. Setjið tómatmauk og tómatpaste í pott ásamt grænmetiskrafti og pressuðum hvítlauk, látið malla í 8 mínútur og hellið yfir spagettíið. 
  3. Skerið grænan kúrbít og kirsuberjatómata og saxið grænkálið. 
  4. Hitið pönnu með ólífuolíu og steikið grænmetið í nokkrar mínútur upp úr smjöri. Best er að byrja að steikja kúrbítinn, bæta svo grænkálinu út í og enda +a tómötunum. 
  5. Blandið öllu saman og bætið saxaðri basilíku saman við.