Koko mjólkurlaus rjómaostur og brauðostur

30 Jan 2019

Loksins er komin ostur sem er algerlega soja og mjólkurlaus og líka hrikalega góður á bragðið. Koko Dairy Free kom nýlega á markað og hefur farið fram úr öllum væntingum. Hægt er að nota rjómaostinn í mat, í rétti, á pizzuna eða bara hvað sem er. Cheddar ostinn er td. hægt að nota á brauð, í mat, í rétti ofl. Koko Dairy Free ostarnir eru lausir við aukaefni, s.s. bragð, litar-eða önnur aukaefni. Rjómaosturinn inniheldur 15% færri hitaeiningar en í hefðbundnum rjómaosti og Cheddar osturinn inniheldur 23% færri hitaeiningar en er í hefðbundnum Cheddar osti.

Ostarnir eru án mjólkur, laktósa, soja, og glúteins. Hnetulausir og lausir við stærstu ofnæmisvalda. Lausir við gerviefni á borð við bragðefni, litar og rotvarnarefni. Viðbætt kalsíum er í ostunum (meira en í hefðbundnum rjómaosti) ásamt D2 og B12 vítamíni.

Hvernig er hægt að nota rjómaostinn?

  • Svipuð áferð og hefðbundinn rjómaostur
  • Hentar í alla matargerð, t.d. dásamlegur á pizzur
  • Hentar fyrir vegan, grænmetisætur og þá sem eru með mjólkuróþol / ofnæmi

Milt rjómabragð. 15% færri kaloríur en í hefðbundnum cheddar osti.

Verð: 569 krónur

Hvernig er hægt að nota Cheddar ostinn?

  • Hentar til að sneiða, rífa niður og almennt í eldamennsku
  • Hentar fyrir vegan, grænmetisætur og þá sem eru með mjólkuróþol / ofnæmi
  • Mjög líkur hefðbundnum cheddar osti

23% færri kaloríur en í hefðbundnum cheddar osti

Verð: 679 krónur.


Koko ostarnir fást í næstu Heilsuhúsverslun.