Hafragrautur með banönum og hlynsýrópi

17 Oct 2017

Góður og hollur hafragrautur.

 
Innihald:
  • 55 gr Rude Health 5 Grain 5 Seed hafragrautur
  • 100 ml Rude Health Almond Drink
  • 100 ml vatn
Til að setja yfir grautinn:
  • 1 banani niðursneiddur
  • 1 lúka af blönduðum hnetum og fræjum (það sem hugurinn girnist)
  • 1 msk af hlynsýróp
  • saltflögur 
Aðferð:
  • Setjið Rude Health 5 Grain 5 Seed hafragrautinn í pott ásamt Rude Health Almond Drink og vatni og hitið að suðu
  • Lækkið hitan og látið malla í 3-4 mín, hrærið reglulega í þar til grauturinn er orðinn mjúkur og rjómakendur. Ef hann er of þykkur bætið þá við skvettu af Rude Health Almond Drink þar til þið eruð ánægð með áferðina.
  • Berið fram í skál og setjið yfir bananan ásamt hnetum og maple sýrópi og endið á því að strá saltflögum yfir.