Keynatura SagaPro 60 stk.

KeyNatura

Vörunúmer : 10155510

SagaPro dregur úr tíðni þvagláta hjá þeim sem eru með litla eða minnkaða blöðrurýmd. SagaPro er íslensk náttúruvara og framleidd úr ætihvönn sem hefur verið ein þekktasta og mikilvægasta lækningajurtin í Norður- Evrópu í mörg hundruð ár. SagaPro er unnið úr hvannarlaufum og getur gagnast konum og körlum með ofvirka blöðru og körlum með stækkaðan blöðruhálskirtil. Notendur SagaPro eru iðulega fólk með ofvirka blöðru og þjást af tíðum þvaglátum. 


4.998 kr
Fjöldi

Varan er klínískt rannsökuð vara og hefur í gegnum árin sannað virkni sína og bætt lífsgæði fjölda einstaklinga bæði hér á landi og erlendis.

SagaPro er unnið úr hvannarlaufum og getur gagnast konum og körlum með ofvirka blöðru og körlum með stækkaðan blöðruhálskirtil. Notendur SagaPro eru iðulega fólk með ofvirka blöðru og þjást af tíðum þvaglátum. 
 
Fækkaðu salernisferðunum
Notendur SagaPro hafa tekið 1-2 töflur fyrir svefninn til að koma í veg fyrir eða fækka salernisferðum að nóttu til. Tíð þvaglát valda jafnan mikilli truflun á nætursvefni og finna margir mun á gæðum svefnsins eftir að inntaka hefst á SagaPro. Jafnframt hafa lífstílshópar í auknum mæli verið að taka SagaPro til að fækka salernisferðum á meðan áhugamálin eru stunduð að kappi. Þetta á við t.d. hlaupara, golfara, hjólreiða - og göngufólk.
 
Ábyrgðaraðili: SagaNatura ehf.

Við mætlum með 1-2 töflum og er einstaklingsbundið á hve stuttum tíma virknin kemur fram. Fólk hefur sagst merkja áhrif frá allt niður í fimm daga frá upphafi notkunar. Margir finna ekki fyrir breytingu fyrr en eftir lengri tíma, en fjörutíu daga skammtur á að nægja til að taka allan vafa um hvort SagaPro gagnast eða ekki. Rétt er að leita læknis ef um tíð þvaglát er að ræða því orsakir fyrir þeim geta verið margvíslegar. Þetta á sérstaklega við um karlmenn.

Hrísgrjónamjöl, SagaPro® hvannarlaufa extract, bambus extract, magnesium sterat, hylki úr jurtabeðmi (HPMC).

Ráðlagður daglegur neysluskammtur: 1-2 hylki á dag, yfir daginn eða fyrir svefn eftir þörfum.

Eitt hylki inniheldur:
SagaPro®: 100 mg
Mælt er með að taka 2 hylki fyrstu þrjá dagana þegar byrjað er að nota SagaPro.

Pakkningarstærð: 60 hylki.
Geymist á þurrum, svölum stað þar sem börn ná ekki til.

Ekki er ráðlagt að neyta meira af vörunni er ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um.
Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu.
Barnshafandi konum, konur með barn á brjósti, börn undir 18 ára aldri og fólk með sjúkdóma er ávalt ráðlagt að leita álits læknis eða annars sérfræðings áður en tekin eru inn fæðubótarefni.

Aðrir hafa einnig keypt

2 fyrir 1

Clearspring Matcha tea 40 gr.

Vrn: 10161606
2.819 kr

Vinsælar vörur

Nýjar vörur