Acure Seriously Soothing hreinsiklútar 30 stk.

Acure

Vörunúmer : 10169854

Hreinsiklútar með extrakt úr rós og gúrku. Fyrir allar húðgerðir.


1.698 kr
Fjöldi

Hreinsiklútar með extrakt úr rós og gúrku. Fyrir allar húðgerðir.

Verið gullin og guðdómleg á ferðinni með kókós hreinsiklútunum úr Seriously Soothing línunni. Hreinsiklútarnir fjarlægja blíðlega farða, óhreinindi, svita og eiturefni úr umhverfinu af andlitunum OG sinnep af munnvikunum. Þannig sleppið þið við allt vatnssull og skol þegar tíminn er dýrmætur á ferð og flugi.

Acure vörurnar eru unnar úr jurtum og náttúrulegri fæðu, innihaldsefnin eru lífræn, kjarnaolíurnar eru hreinar og umbúðirnar eru vistvænar. Í vörurnar fer bara það besta.

Acure nota engin skaðleg efni í snyrtivörurnar sínar og meirihluti innihaldsefna eru vottuð lífræn. Allar vörur frá Acure eru vegan og án parabenefna, jarðolíu, formaldehýðs og súlfats. Þær eru án míkróplastefna, vaselíns og formalíns og eru framleiddar án þess að notast sé við hliðarafurðir úr dýrum og eru „Cruelty Free“ sem þýðir að þær eru framleiddar án grimmdar gagnvart dýrum og að þau stunda ekki tilraunir á dýrum.

Hreinsiklútarnir eru einstaklega hentugir til að hreinsa farðann af andlitinu og til að hreinsa andlitið og líkamann. Þeir eru fullkomnir í ferðalagið, eftir ræktina, í þynnkunni þegar þú vaknar með farðann lekandi niður andlitið, með á ströndina til að hreinsa alls konar mat, klístur, krem og sand og fyrir þau kvöld þegar þú hefur unnið svo mikið, eða keyrt þig svo út, að þú getur varla haldið augunum opnum lengur, hvað þá farið að setja í gang langt og flókið andlitsheinsunarprógramm. Einfaldlega stjúkið klútnum yfir húðina, nuddið óhreinindin af og allt er klárt.

WATER (AQUA), DECYL GLUCOSIDE, GLYCERIN, PYRUS MALUS, (APPLE) FRUIT EXTRACT, ALOE BARBADENSIS LEAF JUICE, MATRICARIA RECUTITA (CHAMOMILE) EXTRACT, ROSA DAMASCENA (ROSE) FLOWER EXTRACT, CUCUMIS SATIVUS (CUCUMBER) EXTRACT, AVENA SATIVA (OAT) KERNAL EXTRACT, COCOS NUCIFERA (COCONUT) FRUIT EXTRACT, POLOXAMER 184, SODIUM BENZOATE, POTASSIUM SORBATE, CITRIC ACID.