KeyNatura AstaEye 60 hylki

KeyNatura

Vörunúmer : 10154626

AstaEye er hannað til þess að viðhalda augnheilsu og koma í veg fyrir hrörnun augnbotna. Íslenskt astaxanthin, lutein og zeaxanthin gegna lykilhlutverki í formúlunni auk vítamína og steinefna úr AREDS2 augnrannsókninni. AREDS2 rannsókn National Eye Institute er skrásett vörumerki United States Department of Health and Human Services.


4.399 kr
Fjöldi

Astaxanthin:

  • verndar húðina fyrir sólargeislum og dregur þar með úr ótímabærri öldrun húðarinnar þar sem hún heldur betur í raka og er teygjanlegri. Húðin þornar því síður og hrukkast eins og gerist hjá flestum þegar aldurinn færist yfir
  • hefur sýnt fram á jákvæð áhrif á úthald og orku þar sem efnið eykur þrek og vöðvamyndun við æfingar auk þess sem það veitir betri endurheimt vöðva eftir átök
  • hefur ýmis jákvæð áhrif á hjarta- og æðakerfi en það getur dregið úr myndun á vonda kólesterólinu og aukið við það „góða“, auk þess sem það hefur jákvæð áhrif á blóðflæði og minnkar bólgur
  • hefur gefið góða raun vegna stirðleika í liðum ásamt því að draga umtalsvert úr liðaverkjum 
  • hefur jákvæð áhrif á augnheilsu því efnið verndar augnbotnana og getur því hjálpað til við augnþreytu, þurrk og minnkað eða hægt á augnhrörnun sem svo margir upplifa með hækkandi aldri

Hreinleiki og gæði Astaxanthin haldast í hendur við framleiðsluaðferðir og framleiðsluaðfanga, t.a.m. vatn. Því var lykilatriði að koma upp framleiðslutækni sem tryggði 100% hreinleika, 100% gæði og skildi eftir sig sem minnsta kolefnisfótspor sem við höfum náð með góðum árangri þar sem við notumst við hreint íslenskt vatn og íslenska orku í framleiðsluferlinu.

Hver dagsskammtur inniheldur:

  • Astaxanthin 4 mg – Fjöldi rannsókna sýna fram á að andoxunarefnið astaxanthin sé mikilvægt til þess að viðhalda augnheilsu.
  • Lutein 10 mg – Zeaxanthin 2 mg – rannsóknir sýna að lutein og zeaxanthin séu mikilvæg fyrir augnþroska, sjón fullorðinna, auk þess sem að koma í veg fyrir augnbotnahrörnun seinna á ævinni.
  • C-vítamín 500 mg (625% NV) – andoxunarefni, dregur úr líkum á augnbotnahrörnun og ský á auga
  • E-vítamín 270 mg (2250% NV) – andoxunarefni, dregur úr líkum á augnbotnahrörnun og ský á auga
  • Kopar 2 mg (200% NV) – kemur í veg fyrir blóðleysi tengt sink inntöku
  • Sink 25 mg (250% NV) – Sink er mikilvægt fyrir melanín myndun í augum.

Ábyrgðaraðili: SagaNatura ehf.

Ráðlagður daglegur neysluskammtur: 2 hylki á dag með mat.

Hrísgrjónamjöl, AstaKeyTM Astaxanthin ríkir smáþörungar (Haematococcus pluvialis), lútein og zeaxanthin (úr morgunfrú), askorbín sýra (C-vítamín), d-alfa-tókóferýl súkkínat (E-vítamín), hylki úr jurtabeðmi (HPMC), sink oxíð, kopar oxíð.

Ráðlagður daglegur neysluskammtur: 2 hylki á dag með mat.
Pakkningarstærð: 60 hylki.
Geymist á þurrum, svölum stað þar sem börn ná ekki til.

Ekki er ráðlagt að neyta meira af vörunni er ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um.
Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu.
Barnshafandi konum, konur með barn á brjósti, börn undir 18 ára aldri og fólk með sjúkdóma er ávalt ráðlagt að leita álits læknis eða annars sérfræðings áður en tekin eru inn fæðubótarefni.

Aðrir hafa einnig keypt

Vinsælar vörur

Nýjar vörur