ICEHERBS Hálsmixtúra með hunangi og piparmyntu 200 ml.

Iceherbs

Vörunúmer : 10139906

Fjallagrasa hálsmixtúra með hunangi og piparmyntu hefur mýkjandi áhrif og er góð gegn særindum í hálsi. Virkni sína sækir mixtúran í fjallagrasaþykkni með fjölsykrum sem mynda þunna himnu yfir slímhúð í hálsi og efri hluta öndunarvegar. Auk fjallagrasanna inniheldur mixtúran hunang og piparmyntu sem eru þekkt fyrir bakteríuhemjandi virkni.


1.829 kr
Fjöldi

Fjallagrasa hálsmixtúra með hunangi og piparmyntu er án alkóhóls og hentar börnum frá eins árs aldri.

Fjallagrasa hálsmixtúrur höfða til allra en þær eru sérstaklega góðar fyrir þá sem reyna mikið á röddina, t.d. söngvara, ræðumenn og kennara.

Fyrirtækið Íslensk fjallagrös hf. (Iceherbs) framleiðir heilsumixtúrur úr fjallagrösum og öðrum íslenskum náttúruvörum undir vörumerkinu Natura Islandica. Vörumerkið Natura Islandica vísar til þeirra verðmæta sem felast í hreinleika íslenskrar náttúru.

Fjölmargar rannsóknir virtra vísindamanna hafa sýnt að virku efnin í fjallagrösunum eru ónæmisörvandi og geta hindrað vöxt baktería og veira. Niðurstöðurnar styðja því vel við aldagamla trú manna á heilsugildi grasanna og að lækningamáttur þeirra eigi við rök að styðjast.

Ábyrgðaraðili: Náttúrusmiðjan ehf.

Hristist fyrir notkun.   1 matskeið (10) ml) 3-5 sinnum á dag handa fullorðnum.  1 teskeið (5 ml) 3-5 sinnum á dag handa börnum eldri en 1 árs.

Maltitólsýróp, hunang, vatn, fjallagrasaþykkni, pektín gum arabicum blanda og  piparmynta.

 

Aðrir hafa einnig keypt

2 fyrir 1

Weleda Sea Buckthorn Body Lotion 200 ml.

Vrn: 10119691
3.799 kr

Vinsælar vörur

2 fyrir 1

Schar Salted Caramel Cookies 150 gr.

Vrn: 10163577
919 kr

Nýjar vörur