Svo er það góða við fíflablöðin að þau skila til baka kalíum sem tapast þegar auka vökvi fer út. Fíflablöðin innihalda einnig þessi beisku efni en í minna magni. Fíflablöðin eru helst notuð til að losa auka vökva í líkamanum eða hverkyns vökvasöfnun sem verður í líkamanum. Það er einnig hægt að nota hana við lifrarkvillum eins og rótina. Gott er að borða fíflablöðin snemma á vorin í salat til að efla hreinsun líkamans einskonar vorhreinsun.
Virk efni: M.a. kalk, kalíum, sink, A, B, C, D og K vítamín, alkaloíðar, sterar og triterpenoíðar.
1 – 3 hylki á dag. 1 tsk duft á dag. 1 tsk – 1 msk í 1 bolla soðið vatn láta standa í 10 mínútur og drekka kannski 2-3 bolla á dag.