Nutrilenk fyrir liðina 90 töflur

Mezina Nutrilenk

Vörunúmer : 10099702

Fyrir slitna liði. NUTRILENK GOLD hefur hjálpað þeim sem þjást af liðverkjum, stirðleika eða braki í liðum


5.199 kr
Fjöldi

NUTRILENK GOLD hefur hjálpað þeim sem þjást af liðverkjum, stirðleika eða braki í liðum. Það er unnið úr sérvöldum fiskibeinagrindum aðallega úr hákarlabeinum sem samkvæmt rannsóknum eru rík af virku, nýtanlegu og uppbyggilegu kondrótíni, kollagenum og kalki fyrir mannfólk. Til þess að gera þessi innihaldsefni virk, þá er það meðhöndlað með ensími (hvata) sem smækkar stóru mólekúlin og gerir það frásogunarhæft og virkt sem frábært byggingarefni fyrir brjóskvef.

Hjá þeim sem þjást af minnkuðum brjóskvef þá getur NUTRILENK GOLD virkað verkjastillandi á liðverki, en liðverkir orsakast oftast af rýrnun brjóskvefs í liðamótum. Einkenni minni brjóskvefs eru m.a. brak í liðamótum, þegar risið er upp, stirðleiki eða sársauki þegar gengið er niður í móti. Hver tafla af NUTRILENK GOLD inniheldur 670mg. af kondrótíni, 40mg af C-vítamíni, 5mcg af D-vítamíni, 1mg af mangan og 250 mg af kalki.

Hverjum hentar NUTRILENK ? Flestum þeim sem þjást af brjóskvefseyðingu og verkjum í liðum og liðamótum.

Fólk finnur gjarnan breytingu/létti eftir ca. 10 daga en sumir þurfa allt upp í 30 daga til að finna bót. NUTRILENK fæst í tveimur sölustærðum 90 töflur og 180 töflur og er stærra glasið mun hagstæðara í innkaupum þeim sem þurfa að nota efnið reglubundið.

Athugið að fólk með skelfisk og/eða fiskipróteina ofnæmi getur ekki tekið Nutrilenk Gold!

Magn: 90 töflur

Ábyrgðaðili: Artasan ehf.

Best er að taka inn 6 töflur á dag til að ná virkni sem fyrst en eftir að árangri er náð þá má minnka niður í 1-3 á dag. Mjög einstaklingsbundið er hversu langan tíma það tekur fyrir efnið að virka.

Aðrir hafa einnig keypt

Vinsælar vörur

Nýjar vörur