Naturli Deo lífrænn svitalyktareyðir með kókos 200 ml.

Nordic Eco Care

Vörunúmer : 10159708

Náttúrulegt svitakrem með ljúfum og mildum kókosilmi úr kaldpressaðri kókosolíu. Það er ekki laust við að ilmurinn minni á nýbakaðar kókoskökur. Engin viðbætt ilmkjarnaolía. Hentar báðum kynjum og fólki á öllum aldri. Ein vinsælasta tegundin. Kemur í veg fyrir svita og drekkur í sig raka á náttúrulegan hátt.


6.955 kr
Fjöldi
  • Án: Ál, alkóhols, kemísk efnum og önnur íblöndunarefni. 
  • Betri valmöguleiki fyrir men og umhverfi.
  • Lífrænt, vegan og hentar báðum kynjum
  • Naturlig Deo er lífrænn, kremkenndur svitalyktareyðir sem framleiddur er úr örfáum sérvöldum náttúrulegum efnum þar sem tekið er fullt tillit til manna, dýra og náttúrunnar. Hann er án áls, alkóhóls, kemískra efna og annara íblöndunarefna. 

Notkun: Taktu smá krem úr krukkunni með fingrunum og berðu þunnt lag á þurra húðina í sitthvorn handakrikann. Leyfðu kreminu að þorna áður en þú klæðir þig, gæti tekið u.þ.b eina mínútu. Ekki setja aðra umferð.

Leiðbeiningar: Notið ekki ef húðin er viðkvæm eða skrámuð Hættu notkun strax ef þú færð útbrot eða kláða. Geymist við stofuhita en athugið að kremið verður þynnra í stofuhita.

Gott að vita. Sumum finnst eins og þeir svitni og/eða lykti meira fyrst á eftir að notkun hefðbundins svitalyktaeyðis með áli er hætt. Ef þetta er eitthvað sem þú kannast við, berðu þá svitakremið oftar á þig eða eftir þörf. Ekki er ráðlagt að bera kremið á sig strax eftir rakstur eða á meðan húðin er enn viðkvæm. Hæfilegt og vel gerlegt er að raka að kvöldi og bera kremið svo á sig næsta morgun því kremið eyðir þeirri lykt sem þá er komin.

Innihald og eiginleikar.

  • Lífræn kaldpressuð kókosolía (rakagefandi og bakteríudrepandi)
  • Lífræn kornsterkja (gleypir raka) 
  • Matarsódi (upprætir svitalykt)
  • Lífræn jójóbaolía ( mjúk og rakagefandi)
  • Lífrænt Carnauba vax (verndar og þykkir)
  • Innihald: Cocos Nucifera Oil, Zea Mays Starch, Sodium bicarbonate, Simmondsia Chinensis Seed Oil, Copernicia cerifera cera.

Aðrir hafa einnig keypt

Vinsælar vörur

Nýjar vörur