Dalileo Ceremonial Kakó 400 gr. #20 bollar

Dalileo

Vörunúmer : 10160174

Poki með tuttugu bollum (400 grömm) af niðurskornu 100% lífrænu og óerfðabreyttu hreinu kakói frá Gvatemala sem er sannkölluð ofurfæða. Þetta kakó kemur frá Dalileo Chocolat í Polochic dalnum í norðurhluta landsins þar sem notast er við umhverfisvænar ræktunaraðferðir, með tilliti til orkusparnaðar, sjálfbærni og skógræktar.


7.879 kr
Fjöldi

Kakóið er svokallað “ceremonial grade cacao" og sannkölluð ofurfæða. Hreint kakó inniheldur mesta magn magnesíum og andoxunarefna nokkurrar plöntu, er mjög góður náttúrulegur orkugjafi og ástardrykkur. Það inniheldur phenylethylamine (PEA), efni sem við framleiðum þegar við verðum ástfangin. PEA skerpir líka fókus og athygli. Anandamide, sem einnig er þekkt sem "the bliss chemical", er endorfín sem mannslíkaminn framleiðir og hefur aðeins fundist í einni plöntu – Cacao Theobroma. Kakó er blóðflæðisaukandi, hefur jákvæð áhrif á úthald og orku, minnkar bólgur, ýtir undir framleiðslu á gleðiboðefninu serótónín, lækkar streituhormónið kortisól og örvar vellíðunarstöðvar í heilanum og framleiðslu á endorfíni. Að auki inniheldur það króm, theobromine, manganese, sink, kopar, járn, C vítamín, omega 6 fitusýrur og tryptophan svo eitthvað sé nefnt af þeim 1000 efnum sem kakóið inniheldur. 

Fjölmargar rannsóknir sem gerðar hafa verið, meðal annars við Yale og Oxford, staðfesta virkni kakóbaunarinnar og stöðu hennar sem heilsusamleg og heilsueflandi fæða.

Kynntu þér töfra kakósins. 

Dagleg notkun: Tilvalið að útbúa heitan kakóbolla, skella kakói í hristinginn, út á grautinn eða til dæmis í hnetumixið. Hér má sjá leiðir til að útbúa kakóbolla. 

Framleiðsluferli: Kakóbaunirnar eru gerjaðar í sedrusviðarkössum og sólþurrkaðar eftir gerjun. Þær eru síðan léttristaðar, skurnin tekin af þeim og kakóið malað í massa sem harðnar. Kakómassinn viðheldur náttúrulegu fitumagni og mjúk vinnslan varðveitir mikilvæg næringarefni sem annars tapast eftir því sem kakóbaunin er meira unnin.

Aðrir hafa einnig keypt

Vinsælar vörur

Nýjar vörur