Natures aid Krill Oil 100% Pure Omega-3 500 mg.

Natures Aid

Vörunúmer : 10142430

Omega 3 í sinni hreinustu og öflugustu mynd, sótt í Suðurskautshafið sem er hreinasta hafsvæði veraldar. Eflir einbeitinguna og byggir upp hjarta, æða- og ónæmiskerfið. Það sem gerir krillolíuna sérstaka er að líkaminn á mjög auðvelt með að nýta sér fitukeðjurnar í krillinu og ekkert eftirbragð er eftir inntöku.


4.999 kr
Fjöldi

Krill blandast við vatn og þess vegna er talið að maður sé ekki að ropa upp bragði.  Aðrar fiskiolíur blandast ekki við vatn.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að Omega 3 er gott fyrir æðakerfið, heilann, húðina og ónæmiskerfið. Sífellt fleiri rannsóknir leiða í ljós kosti þess að bæta Omega 3 fitusýrum inn í mataræði okkar og regluleg inntaka getur:

  • Hækkað „góða“ HDL kólesterólið
  • Bætt minnið og aukið einbeitingu
  • Mýkt liði og dregið úr stirðleika
  • Dregið úr bólgum
  • Dregið úr þurrkublettum á húð og minnkað exem
  • Minnkað líkur á insúlínónæmi (sykursýki II)
  • Minnkað líkur á þunglyndi
  • Jafnað blóðsykurinn
  • Elft lifrarstarfsemina
  • Haft góð áhrif á teygjanleika húðarinnar
  • Unnið gegn öldrun

Krill eða ljósáta er lítið krabbadýr sem lifir í efstu lögum sjávar.  Suðurhafsljósátan hefur mikið vægi í vistkerfi  Suðurhafana og fjöldi sjávardýra byggir tilveru sína beint og óbeint á þessu eina krabbadýri.   Krill er neðst í fæðukeðjunni sem þýðir að krillolían er sú hreinasta sem finnst,  en mengun eins og þungmálmar er að verða mikið vandamál í mörgum fisktegundum í dag.

Suðurhafskrillið inniheldur náttúrulegt andoxunarefni sem heitir Astaxanthin og er það talið eitt það öflugasta sem völ er á.
Vegna mikillar andoxunar frá Astaxanthin (rauði liturinn frá krabbadýrinu)  hefur krillolían mikinn stöðugleika og því með mikla vörn gegn þránun.

Krillolían er rík af EPA og DHA fitusýrum og nýtanleiki og frásogun er mun meiri sökum þess að krill olían inniheldur fosfólípíð. Samkvæmt rannsóknum þarf aðeins 1 gr. af krill olíu meðan að þarf 4-6 gr. af öðrum fiskiolíum til að ná sömu áhrifum.

Superba er framleiðandinn af olíunni en World Wildlife Fondation staðfestir að Aker bio marine, sem veiða og framleiða Superba krill olíuna, stunda vistvænar og sjálfbærar veiðar.

Heildarstofn Krillsins í suður íshafinu er áætlaður vera um 400 miljón tonn. Undanfarin ár hefur aflinn verið undir 150.000 tonn á ári en vísindamenn og aðrir sérfræðingar telja að óhætt sé í framtíðinni að auka heildaraflann til muna án þess að ganga á stofninn. Strangt eftirlit er með veiðum og umferð um Suður íshafið.

Aðferðin sem notuð er við veiðarnar er mjög sérhæfð, trollið er í kafi allan tímann og stöðugt flæði af sjó fer í gegn og Krillið fer beint í vinnslu tanka. Með þessari vinnslu er tryggð hámarks nýting á næringarefnum.  Mikil áhersla er lögð á að það sé engin meðafli og með þessari aðferð veiðist bara Krill,  röskun á öðru lífríki þarna sem er viðkvæmt er lítil sem enginn.

Dr. Mercola fær Krill olíuna sem hann notar í sína framleiðslu frá Superba og hér má sjá samanburð við venjulega fiskiolíu.

Ábyrgðaðili: Artasan ehf.

Aðrir hafa einnig keypt

Vinsælar vörur

Nýjar vörur