Lifestream Bioactive spírulina 200 hylki

Lifestream

Vörunúmer : 10065786

Sýnt er að efnið styrkir varnir líkamans gegn ýmsum bakteríum og er öflug vörn gegn flensu og kvefpestum. Þeir sem neyta reglulega Lifestream Spirulina finna fljótt aukið heilsuhreysti. Lifestream Spirulina er næringarefni fyrir börn sem fullorðna.


5.549 kr
Fjöldi

Lifstream Spirulina eykur orku og bætir líðan
Margir finna fyrir orkuleysi og þreytu í skammdeginu. Rannsóknir hafa sýnt að inntaka á Lifestream Spirulina bætir líðan fólks til muna. Sýnt er að efnið styrkir varnir líkamans gegn ýmsum bakteríum og er öflug vörn gegn flensu og kvefpestum. Þeir sem neyta reglulega Lifestream Spirulina finna fljótt aukið heilsuhreysti. Lifestream Spirulina er næringarefni fyrir börn sem fullorðna.

Hvað er Spirulina?
Spirulina eru örsmáir blágrænir þörungar. Lifestream ræktar þörungana í fersku vatni undir ströngu óháðu gæðaeftirliti. Vísindamenn eru á því að Spirulina sé nánast fullkomin fæða. Líkaminn nýtir næringu Spirulina betur en úr öðrum fæðutegundum að grænmeti meðtöldu. Margar rannsóknir hafa verið gerðar á efninu og niðurstöður þeirra birst í vísindatímaritum. Ekkert annað bætiefni er jafn næringarríkt og Lifestream Spirulina sem þar utan er hreint og óblandað.

Lífrænt fjölvítamín sem virkar
Gott er að vera meðvitaður um gæði bætiefna og vítamína. Verksmiðjuframleidd vítamín eru samsett tilbúin næringaefni sem skortir algerlega lífræna, samverkandi næringu. Ekki er mögulegt að búa til eftirlíkingu af hinu eina fullkomna, lífræna jafnvægi næringarefnanna í Spirulina. Þegar Lifestream Spirulina er valið sem fjölvítamín jafngildir það því að fá næringu beint úr fæðunni, eins og ráðlagt er af næringafræðingum. Lifestream Spirulina er því upplagt fyrir alla fjölskylduna. Undanfarið hefur mikið verið rætt um að börn og unglingar fái ekki nauðsynleg næringaefni og borði of lítið af ávöxtum og grænmeti. Spirulina er besti möguleikinn sem næringarauki fyrir börn og unglinga og getur bætt heilsu þeirra og líðan.

Öflug vörn gegn flensum og kvefi
Lifestream Spirulina er ekki líkt neinu öðru Spirulina vegna hreinleika og yfirburða næringarstyrkleika. Hátt hlutfall af GLA-fitusýrum styrkir taugakerfið, dregur úr streitu og reynist vel gegn athyglisbresti. Einbeiting eflist og efnið dregur úr ofvirkni og pirringi. Sannað þykir að efnið eykur orku og dregur þar af leiðandi úr sleni, það er því mjög gott fyrir námsmenn. Sömuleiðis fólk sem er undir miklu vinnuálagi. Þá hafa margir sagt að sykurþörf verði minni með inntöku á Lifestream Spirulina og betra jafnvægi næst á blóðsykur.

Lifestream Spirulina inniheldur mesta magn GLA og blaðgrænu af öllu því Spirulina sem er á markaðnum.

Hvenær á að taka inn Spirulina?
Ágætt er að taka Lifestream Spirulina þegar orkubirgðir líkamans þverra og þreyta sækir að, til dæmis síðdegis. Glykogen og blaðgrænan eykur súrefnismettun í blóði, orkan eykst og andleg líðan um leið þannig að maður verður mun hressara en áður. Því meira Glykogen í líkamanum í líkamsræktinni þeim mun betri árangur. Best er að taka Lifestream Spirulina inn klukkustund fyrir æfingu og er þá merkjanlegur munur á þreki, úthaldi og einbeitingu.

Einstök gæði og vandaðar umbúðir
Spirulina hefur þann eiginleika að hreinsa úrgangsefni úr líkamanum en fólk neytir mikilla aukefna í matvælum. Spirulina er algerlega laust við skordýraeitur, illgresieyði, mengun, sýkingar og það er ekki genabreytt. Engu er bætt í til að drýgja eða neitt tekið úr.

Lifestream Spirulina er ræktað eftir alþjóðlegum gæða- og hreinleikastaðli. Gæðastaðall ISO 9001 og 14001.

WHO – Alþjóðlega heilbrigðisstofunin telur Spirulina í hæsta gæðaflokki og Lifestream ákjósanlegan næringaauka fyrir börn og fullorðna.

Ábyrgðaraðili: Celsus heilsuvörur ehf.

Aðrir hafa einnig keypt

Vinsælar vörur

2 fyrir 1

Schar Salted Caramel Cookies 150 gr.

Vrn: 10163577
919 kr

Nýjar vörur